Nokia 6111 - Rafhlaðan hlaðin

background image

Rafhlaðan hlaðin

Viðvörun: Aðeins skal nota rafhlöður, hleðslutæki og aukahluti sem Nokia hefur
samþykkt til nota með þessari tilteknu tegund. Ef notaðar eru aðrar gerðir gæti öll
ábyrgð og samþykki fallið niður og slíkri notkun getur fylgt hætta.

Þetta tæki er ætlað til notkunar þegar það er hlaðið orku frá AC-4 hleðslutæki.

Seljandi símans veitir upplýsingar um fáanlega aukahluti sem samþykktir eru til
notkunar.

1. Stingdu hleðslutækinu í samband í innstungu.

2. Opnaðu lokið á tengispjaldinu (1).

3. Stingdu snúru hleðslutækisins í samband neðst á

símanum (2).

Ef rafhlaðan er alveg tæmd geta liðið nokkrar mínútur þar til hleðsluvísirinn birtist
á skjánum eða þar til hægt er að hringja.

Hleðslutíminn fer eftir hleðslutækinu og rafhlöðunni. Það tekur t.d. um
1 klukkustundir og 10 mínútur að hlaða BL-4B rafhlöðu með AC-4 hleðslutæki
þegar síminn er í biðham.