 
Vottorð
Mikilvægt: Þó að notkun vottorða dragi verulega úr þeirri áhættu sem fylgir 
fjartengingum og uppsetningu hugbúnaðar verður að nota þau rétt svo að aukið 
öryggi fáist. Tilvist vottorðs er engin vörn ein og sér. Vottorðastjórinn verður að 
vera með rétt, sannvottuð eða tryggileg vottorð svo að aukið öryggi fáist. Vottorð 
eru bundin tilteknum tíma. Ef textinn Útrunnið vottorð eða Ógilt vottorð birtist þó 
að vottorðið ætti að vera gilt skal athuga hvort rétt dag- og tímasetning er á 
tækinu.
Áður en vottorðsstillingum er breytt þarf að ganga úr skugga um að örugglega 
megi treysta eiganda þess og að það tilheyri í raun eigandanum sem tilgreindur er.
 
123
Copyright
© 2006 Nokia. All rights reserved.
Til eru þrenns konar vottorð: vottorð miðlara, heimildarvottorð og 
notandavottorð. Þú gætir fengið þessi vottorði hjá þjónustuveitunni. 
Þjónustuveitan vistar heimildarvottorðin og notandavottorðin í 
öryggiseiningunni.
Til að skoða lista yfir heimildar- og notandavottorð sem hefur verið hlaðið niður í 
símann skaltu velja 
Valmynd
>
Stillingar
>
Öryggisstillingar
>
Heimildavottorð
eða
Notandavottorð
.
Öryggisvísirinn
birtist meðan tenging er virk ef gagnaflutningur milli símans
og efnismiðlarans er dulkóðaður.
Öryggistáknið sýnir ekki að gagnasendingin milli gáttarinnar og efnisþjónsins (eða staðarins 
þar sem umbeðin tilföng eru geymd) sé örugg. Þjónustuveitan tryggir gagnasendinguna milli 
gáttarinnar og efnisþjónsins.