Nokia 6111 - Leiðbeiningar um sannprófun á rafhlöðum frá Nokia

background image

Leiðbeiningar um sannprófun á rafhlöðum frá Nokia

Notaðu alltaf rafhlöður frá Nokia til að tryggja öryggi þitt. Til að tryggja að þú fáir rafhlöður
frá Nokia skaltu kaupa þær hjá viðurkenndum söluaðila Nokia, ganga úr skugga um að
'Nokia Original Enhancements' táknið sé á umbúðunum og skoða heilmyndarmiðann á
eftirfarandi hátt:

Þó svo að þessum fjórum skrefum sé fylgt nákvæmlega er það ekki fullkomin trygging fyrir
því að rafhlaðan sé sannvottuð. Ef þú hefur minnstu ástæðu til að ætla að rafhlaðan þín sé
ekki ósvikin Nokia-rafhlaða skaltu ekki nota hana heldur fara með hana til viðurkennds
þjónustu- eða söluaðila Nokia. Viðurkenndir þjónustu- og söluaðilar Nokia kanna
sannvottun rafhlöðunnar. Ef ekki er hægt að staðfesta sannvottunina skaltu skila
rafhlöðunni til verslunarinnar þar sem þú keyptir hana.

Sannvottun heilmyndar

1. Þegar þú horfir á heilmyndina á miðanum ættirðu að sjá

Nokia-handabandstáknið frá einu sjónarhorni og 'Nokia
Original Enhancements' táknið frá öðru.

background image

130

Copyright

© 2006 Nokia. All rights reserved.

2. Þegar þú snýrð heilmyndinni til vinstri, hægri, upp eða niður

ættirðu að sjá 1, 2, 3, eða 4 punkta, allt eftir staðsetningu
hennar.

3. Skafðu hliðina á miðanum og þá á að koma í ljós 20-stafa tala,

t.d. 12345678919876543210. Snúðu rafhlöðunni þannig að
tölurnar vísi upp. 20 stafa talan byrjar í efri röðinni og heldur
áfram í neðri röðinni.

4. Fáðu staðfestingu á því að 20 stafa talan sé gild með því að

fylgja leiðbeiningunum á www.nokia.com/batterycheck.

Hægt er að senda staðfestingarbeiðni í textaboðum með því að
slá inn 20 stafa töluna, t.d. 12345678919876543210, og senda
á númerið

+44 7786 200276. Gjaldskrá innlendra og erlendra

símafyrirtækja gildir.

Þá áttu að fá skilaboð sem segja til um hvort hægt er að
sannvotta töluna eða ekki.

background image

131

Copyright

© 2006 Nokia. All rights reserved.

Hvað ef rafhlaðan er ekki ósvikin?

Ef þú getur ekki staðfest að Nokia-rafhlaðan með heilmyndinni á miðanum sé ósvikin
Nokia-rafhlaða skaltu ekki nota rafhlöðuna. Farðu með hana til næsta viðurkennda
þjónustuaðila eða sölustaðar Nokia til að fá aðstoð. Notkun rafhlaða sem eru ekki
samþykktar af framleiðanda getur verið hættuleg. Hún getur jafnframt leitt til þess að tækið
og aukahlutir þess virki ekki sem skyldi eða skemmist. Notkun þeirra kann jafnframt að
ógilda allar þær samþykktir eða ábyrgðir sem eiga við tækið.

Nánari upplýsingar um ósviknar Nokia-rafhlöður er að finna á www.nokia.com/battery.

background image

132

Copyright

© 2006 Nokia. All rights reserved.