Nokia 6111 - Raddstýrð hringing

background image

Raddstýrð hringing

Hægt er að hringja með því að bera fram raddmerki sem tengt hefur verið við
tiltekið símanúmer. Raddmerki getur verið hvers kyns orð, svo sem nafn
viðkomandi. Hægt er að búa til takmarkaðan fjölda raddmerkja.

Áður en raddmerki eru notuð skal bent á eftirfarandi:

Raddmerki eru ekki háð tungumáli. Þau eru háð rödd þess sem talar.

Nafnið þarf að bera fram nákvæmlega eins og það var hljóðritað.

Raddmerki eru næm fyrir umhverfishljóðum. Þau skal hljóðrita og nota í hljóðlátu
umhverfi.

Ekki er hægt að nota mjög stutt nöfn. Nota skal löng nöfn og forðast áþekk nöfn fyrir
mismunandi númer.

Til athugunar: Notkun raddmerkja getur verið erfið í hávaðasömu umhverfi eða í
neyðartilvikum, því ætti ekki að treysta eingöngu á raddstýrt val við allar
aðstæður.