Hringt með raddmerki
Ef forrit í símanum er að nota pakkagagnatenginguna til að senda eða taka á móti
gögnum þarftu fyrst að loka forritinu áður en þú getur hringt með raddmerki.
1. Styddu á og haltu inni hljóðlækkunartakkanum með símann í biðham eða
hægri valtakkanum. Stutt hljóðmerki heyrist og
Tala núna
birtist.
2. Berðu raddmerkið skýrt fram. Síminn spilar raddmerkið og velur sjálfkrafa
númerið með raddmerkinu eftir eina og hálfa sekúndu.
Ef þú ert að nota samhæft höfuðtól með höfuðtólatakka skaltu styðja á og halda
inni höfuðtólatakkanum til að hefja raddstýrða hringingu.