Nokia 6111 - Öryggisstillingar

background image

Öryggisstillingar

Þegar öryggisaðgerðir sem takmarka símtöl eru í notkun (svo sem útilokun, lokaður
notendahópur og fast númeraval) getur samt verið hægt að hringja í opinbera
neyðarnúmerið sem er forritað í tækið.

Veldu

Valmynd

>

Stillingar

>

Öryggisstillingar

og úr eftirfarandi valkostum:

Krefjast PIN-númers

— til að láta símann biðja um PIN- eða UPIN-númer í hvert

skipti sem kveikt er á honum. Á sumum SIM-kortum er ekki hægt að gera þessa
beiðni óvirka.

Útilokunarþjónusta

— til að takmarka símtöl í og úr símanum (sérþjónusta). Krafist

er lykilorðs vegna útilokunar.

Fast númeraval

— til að takmarka úthringingar í valin símanúmer ef SIM-kortið

styður aðgerðina.

Lokaður notendahópur

— til að tilgreina hóp fólks sem hægt er að hringja í og sem

getur hringt í þig (sérþjónusta).

Öryggisstig

>

Sími

— síminn biður um öryggisnúmer í hvert skipti sem nýtt

SIM-kort er sett í hann. Veldu

Minni

og síminn biður um öryggisnúmer þegar

minni SIM-korts er virkt og þú vilt skipta yfir í annað minni.

Aðgangslyklar

— til að ákveða PIN- og UPIN-númerið sem er notað, eða til að

breyta öryggisnúmerinu, PIN-, UPIN- eða PIN2-númerinu, og lykilorði útilokunar.

background image

84

Copyright

© 2006 Nokia. All rights reserved.

Númer í notkun

— til að velja hvort PIN- eða UPIN-númerið eigi að vera virkt.

PIN2-beiðni

— til að ákveða hvort PIN2-númers er krafist þegar ákveðnar aðgerðir

símans, sem PIN2-númerið nær yfir, eru notaðar (fer eftir SIM-kortinu).

Heimildavottorð

og

Notandavottorð

— til að skoða lista yfir heimildar-og

notandavottorð sem hefur verið hlaðið niður í símann. Sjá

Vottorð

á bls.

122

.

Stillingar fyrir öryggiseiningu

— Sjá

Öryggiseining

á bls.

121

.